Klæðnaður barnanna þarf að vera í samræmi við veðurfar og hafa ber í huga að veður getur breyst snögglega. Merkja skal föt barnanna á greinilegan hátt, sérstaklega útiföt. Nauðsynlegt er að hafa aukafatnað í leikskólanum og gott er að hafa inniskó. Aukaföt barnanna eru geymd í plastkössum á hillu í forstofunni, og mikilvægt að bæta í þá eftir þörfum. Til hægðarauka höfum við tekið saman lista um nauðsynlegan búnað sem foreldrar geta nálgast hjá deildarstjórum. Í leikskólanum er unnið með ýmis efni og áhöld sem geta skemmt föt. Vinsamlegast gætið þess að barnið sé ekki í fötum sem ykkur er sérstaklega sárt um.

© 2016 - 2024 Karellen